Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 1. febrúar 2013

Nýtt viðmiðunarverð 1. febrúar 2013

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 31. janúar 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 10% og hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 1. febrúar 2013. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.   Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.