Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 1. júlí 2011

Nýtt viðmiðunarverð 1. júlí 2011

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), þann 28. júní 2011 var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum ufsa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Breytingin tekur gildi 1. júlí 2011. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998 Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.