Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 1. mars 2012

Nýtt viðmiðunarverð 1. mars 2012

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS) þann 29. febrúar 2012 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 7%, lækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5% og jafnframt var gert nýtt samkomulag um viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa, þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi frá og með 1. mars 2012. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.