Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 1. nóv. 2011

Nýtt viðmiðunarverð 1. nóv. 2011

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), þann 31. október 2011 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila um 10%. Jafnframt var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á karfa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila um 5%. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 2011. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998 Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.