Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 1. nóvember 2012

Nýtt viðmiðunarverð 1. nóvember 2012

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 01. nóvember 2012 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 4%, hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5%, hækka viðmiðunarverð á karfa um 3% og jafnframt var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa um 5%, þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 01. nóvember 2012. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.