Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. apríl 2019

Nýtt viðmiðunarverð 2. apríl 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. apríl 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur helst óbreyttur
  • Óslægður þorskur lækkar um 3,7%
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa lækkar um 3,9%
  • Karfi helst óbreyttur
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. apríl 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.