Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2016

Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2016

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. desember 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 5% og að sama skapi slægða og óslægða ýsu. Slægður og óslægður ufsi lækkar jafnframt um 3,7%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. desember 2016. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.