Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2020
02. des 2020
Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2020
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. desember 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 2,0%
Óslægður þorskur hækkar um 4,0%
Slægð ýsa hækkar um 5,3%
Óslægð ýsa hækkar um 2,0%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. desember 2020.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.