Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. febrúar 2015

Nýtt viðmiðunarverð 2. febrúar 2015

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. febrúar 2015 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum þorski um 10%, óslægðum þorski um 5%, karfa um 7,5% og slægðum og óslægðum ufsa um 2%. Jafnframt var ákveðið að lækka verð á slægðri ýsu um 10%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. febrúar 2015. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.