Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. júlí 2021

Nýtt viðmiðunarverð 2. júlí 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. júlí 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
 
Slægður þorskur hækkar um 2,6%
Óslægður þorskur hækkar um 5,3%
Slægð ýsa helst óbreytt
Óslægð ýsa hækkar um 3,0%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur
 
Þetta á við um afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. júlí 2021.
 
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.