Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. júní 2014

Nýtt viðmiðunarverð 2. júní 2014

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 2. júní 2014 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 10% og karfa um 8%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. júní 2014. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.