Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. maí 2013

Nýtt viðmiðunarverð 2. maí 2013

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 2. maí 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 6%. Jafnframt var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á karfa um 7%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. maí 2013. Vegna tæknilegra ástæðna var ekki unnt að setja töflurnar inn á heimasíðu Verðlagsstofu samdægurs. Töflurnar bárust hins vegar til þeirra sem skráð sig hafa á póstlista stofunnar. Það er hægt með því að senda tölvupóst á verdlagsstofa@verdlagsstofa.is.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.