Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. nóvember 2018

Nýtt viðmiðunarverð 2. nóvember 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. nóvember 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 10%
  • Óslægður þorskur hækkar um 10%
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Karfi hækkar um 10%
  • Ufsi hækkar um 3,3%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. nóvember 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.