Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. október 2017

Nýtt viðmiðunarverð 2. október 2017

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. október 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 10,0% 
  • Óslægður þorskur hækkar um 7,0%
  • Slægð ýsa hækkar um 4,0%
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Karfi hækkar um 7,0%
  • Ufsi hækkar um 3,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. október 2017. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.