Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. október 2020

Nýtt viðmiðunarverð 2. október 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. október 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 12,0%
  • Óslægður þorskur hækkar um 12,0%
  • Slægð ýsa hækkar um 3,5%
  • Verð á óslægðri ýsu, karfa, slægðum og óslægðum ufsa haldast óbreytt.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. október 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.