Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. september 2013

Nýtt viðmiðunarverð 2. september 2013

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 2. september 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 3%. Jafnframt var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á karfa um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. september 2013. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.