Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2. september 2020

Nýtt viðmiðunarverð 2. september 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. september 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Óslægður þorskur hækkar um 3,0%
  • Slægð ýsa hækkar um 5,4%
  • Verð á slægðum þorski, óslægðri ýsu, karfa, slægðum og óslægðum ufsa haldast óbreytt.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. september 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.