Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2.desember 2013

Nýtt viðmiðunarverð 2.desember 2013

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 2. desember  2013 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðri ýsu um 5% og óslægðum þorski um 5% og, slægðum og óslægðum ufsa um 2% og karfa um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. desember 2013. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.