Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 2.september 2015

Nýtt viðmiðunarverð 2.september 2015

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. september 2015 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 7%. Jafnframt var ákveðið lækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 10%  og hækka bæði slægðan og óslægðan ufsa um 8,6 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. september 2015. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.