Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. apríl 2013

Nýtt viðmiðunarverð 3. apríl 2013

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSí, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 3. apríl 2013 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðri og óslægðri ýsu um 10%. Jafnframt var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á karfa um 10%.  Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. apríl 2013. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.