Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. apríl 2020

Nýtt viðmiðunarverð 3. apríl 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. apríl 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um 5,6%
  • Óslægður þorskur lækkar um 9,2%
  • Slægð ýsa lækkar um 7,8%
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Karfi helst óbreyttur
  • Ufsi hækkar um 2,1%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. apríl 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.