Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. desember 2019

Nýtt viðmiðunarverð 3. desember 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 2%
  • Óslægður þorskur hækkar um 2%
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa lækkar um 1%
  • Ufsi hækkar um 1,4%
  • Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. desember 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.