Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. febrúar 2014

Nýtt viðmiðunarverð 3. febrúar 2014

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 3. febrúar 2014 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 5%. Jafnframt er viðmiðunarverð fyrir slægða og óslægða ýsu hækkað um 10%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða er seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. febrúar 2014. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.