Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. maí 2019

Nýtt viðmiðunarverð 3. maí 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. maí 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um 3,1%
  • Óslægður þorskur helst óbreyttur
  • Slægð ýsa lækkar um 7%
  • Óslægð ýsa lækkar um 3,7%
  • Karfi hækkar um 4%
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. maí 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.