Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. mars 2020

Nýtt viðmiðunarverð 3. mars 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. mars 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 1%
  • Óslægður þorskur helst óbreyttur
  • Slægð ýsa hækkar um 7%
  • Óslægð ýsa hækkar um 7%
  • Karfi hækkar um 2%
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. mars 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.