Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. nóvember 2020

Nýtt viðmiðunarverð 3. nóvember 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. nóvember 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur helst óbreyttur
  • Óslægður þorskur hækkar um 8,0%
  • Slægð ýsa lækkar um 2,6%
  • Óslægð ýsa lækkar um 5,3%
  • Slægður og óslægður ufsi hækkar um 4,0%
  • Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. nóvember 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.