Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 30. apríl 2014

Nýtt viðmiðunarverð 30. apríl 2014

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS), sem haldinn var 30. apríl 2014 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á karfa um 7%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 30. apríl 2014. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.