Nýtt viðmiðunarverð 4. apríl 2017
04. apr 2017
Nýtt viðmiðunarverð 4. apríl 2017
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. apríl 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 5,7% og karfa um 5%.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. apríl 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.