Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 4. febrúar 2019

Nýtt viðmiðunarverð 4. febrúar 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. febrúar 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 4%
  • Óslægður þorskur helst óbreyttur
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Karfi hækkar um 2%
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. febrúar 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.