Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 4. júlí 2017

Nýtt viðmiðunarverð 4. júlí 2017

Fulltrúar hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), ákváðu í dag 4. júlí 2017, að breyta viðmiðunarverðum skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 4,9% 
  • Óslægður þorskur hækkar um 2,2%
  • Slægð ýsa hækkar um 4,1%
  • Óslægð ýsa hækkar um 12,8%
  • Karfi er óbreyttur
  • Ufsi lækkar um -4,1%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. júlí 2017. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.