Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 4. maí 2021

Nýtt viðmiðunarverð 4. maí 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. maí 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur lækkar um 4,2%
Óslægður þorskur lækkar um 4,5%
Slægð ýsa hækkar um 6,8%
Óslægð ýsa hækkar um 2,2%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við um afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. maí 2021.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.