Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. febrúar 2018

Nýtt viðmiðunarverð 5. febrúar 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. febrúar 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 2,1% 
  • Óslægður þorskur lækkar um -3,5%
  • Slægð ýsa lækkar um -0,9%
  • Óslægð ýsa hækkar um 1,3%
  • Karfi hækkar um 3%
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. febrúar 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.