Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2012

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2012

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (LÍÚ, LS) þann 5. janúar 2012 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum þorski um 3%, hækka viðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 3% og jafnframt var viðmiðunarverð á karfa hækkað um 5% þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi frá og með 5. janúar 2012. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.