Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2018

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um -1,9% 
  • Óslægður þorskur lækkar um -4,9%
  • Slægð ýsa hækkar um 1,5%
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Karfi hækkar um 4%
  • Ufsi lækkar um -1,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5.janúar 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.