Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2021

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 1,0%
  • Óslægður þorskur hækkar um 2,0%
  • Slægð ýsa lækkar um 3,2%
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Slægður og óslægður ufsi hækkar um 3,7%
  • Karfi hækkar um 2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. janúar 2021.

Allar verðtöflur

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.