Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. maí 2015

Nýtt viðmiðunarverð 5. maí 2015

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. maí 2015 var ákveðið að hækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 3%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. maí 2015. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.