Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. nóvember 2019

Nýtt viðmiðunarverð 5. nóvember 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. nóvember 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 8%
  • Óslægður þorskur hækkar um 8%
  • Slægð ýsa hækkar um 8,7%
  • Óslægð ýsa helst óbreytt
  • Ufsi helst óbreyttur
  • Karfi hækkar um 4%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. nóvember 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.