Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 5. október 2021

Nýtt viðmiðunarverð 5. október 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. október 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 13%
Óslægður þorskur hækkar um 7,5%
Slægð ýsa hækkar um 11%
Óslægð ýsa lækkar um 2,1%
Karfi hækkar um 4%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur

Þetta á við um afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. október 2021.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.

Sækja nýtt viðmiðunarverð