Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 6. ágúst 2019

Nýtt viðmiðunarverð 6. ágúst 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. ágúst 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Óslægður þorskur hækkar um 5%
  • Óslægð ýsa hækkar um 5%
  • Ufsi hækkar um 5%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. ágúst 2019. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.