Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 6. janúar 2020

Nýtt viðmiðunarverð 6. janúar 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. janúar 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 3%
  • Óslægður þorskur hækkar um 3%
  • Slægð ýsa hækkar um 3%
  • Óslægð ýsa hækkar um 3%
  • Karfi helst óbreyttur
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. janúar 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.