Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 6. maí 2020

Nýtt viðmiðunarverð 6. maí 2020

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. maí 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um 7,2%
  • Óslægður þorskur lækkar um 8,8%
  • Slægð ýsa lækkar um 10,8%
  • Óslægð ýsa hækkar um 1,9%
  • Karfi lækkar um 5%
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. maí 2020. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.