Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 6. nóvember 2017

Nýtt viðmiðunarverð 6. nóvember 2017

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. nóvember 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 3,0% 
  • Óslægður þorskur hækkar um 5,0%
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa lækkar um -5,0%
  • Karfi helst óbreyttur
  • Ufsi lækkar um -1,3%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. nóvember 2017. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.