Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 7. apríl 2021

Nýtt viðmiðunarverð 7. apríl 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. apríl 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur lækkar um 5,0%
Óslægður þorskur lækkar um 9,3%
Slægð ýsa hækkar um 4,6%
Óslægð ýsa hækkar um 4,2%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 7. apríl 2021.

Allar verðtöflur

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.