Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 7. maí 2018

Nýtt viðmiðunarverð 7. maí 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. maí 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um -5,3% 
  • Óslægður þorskur lækkar um -7,1%
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa hækkar um 3,2%
  • Karfi helst óbreyttur
  • Ufsi lækkar um -1,5%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 7. maí 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.