Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 9. júní 2017

Nýtt viðmiðunarverð 9. júní 2017

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. júní 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á eftirfarandi tegundum:

  • Slægður þorskur lækkar um 2,7% 
  • Óslægður þorskur lækkar um 12%
  • Slægð ýsa lækkar um 4,9%
  • Einnig var ákveðið að hækka óslægða ýsu um 3,4%.
  • Karfi lækkar um 3%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 9. júní 2017. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.