Fara í efni

Nýtt viðmiðunarverð 3. febrúar 2021

Nýtt viðmiðunarverð 3. febrúar 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. febrúar 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur lækkar um 3,0%
  • Óslægður þorskur lækkar um 2,0%
  • Slægð ýsa hækkar um 3,0%
  • Óslægð ýsa hækkar um 2,0%
  • Slægður og óslægður ufsi lækkar um 4,3%
  • Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. febrúar 2021.

Allar verðtöflur

Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.