Fara í efni

Viðmiðunarverð 4. september 2018

Viðmiðunarverð 4. september 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. september 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 1,2%
  • Óslægður þorskur hækkar um 7,8%
  • Slægð ýsa helst óbreytt
  • Óslægð ýsa lækkar um -7,0%
  • Karfi helst óbreyttur
  • Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. september 2018. Frekari upplýsingar er að finna undir eldri verð.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.