Fara í efni

Viðmiðunarverð í gildi frá 1. nóvember 2023

Viðmiðunarverð í gildi frá 1. nóvember 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 1. nóvember 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur lækkar um 2,5%
Óslægður þorskur lækkar um 2,5%
Slægð ýsa lækkar um 9,0%
Óslægð ýsa lækkar um 10,0%
Ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 1. nóvember 2023. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Sækja allar verðtöflur