Viðmiðunarverð í gildi frá 3. desember 2021
		
				03. des 2021	
	
		
			
				
		
		
	
	Viðmiðunarverð í gildi frá 3. desember 2021
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 2% 
Óslægður þorskur breytist ekki 
Slægð ýsa hækkar um 5% 
Óslægð ýsa breytist ekki 
Karfi breytist ekki 
Ufsi hækkar um 16,3%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. desember 2021. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.