Viðmiðunarverð í gildi frá 6. ágúst 2025
06. ágú 2025
Viðmiðunarverð í gildi frá 6. ágúst 2025
Samkvæmt ákvörðun hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS) frá 6. ágúst 2025, breytist viðmiðunarverð samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægð ýsa hækkar um 4,6%
Óslægð ýsa hækkar um 4,6%
Ufsi hækkar um 2,2%
Verð á þorski og karfa helst óbreytt frá 2. júlí 2025.
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. ágúst 2025.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.